Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 220
Gestir í gær: 45
Samtals flettingar: 62914
Samtals gestir: 17585
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 00:11:58

Blogg

26.8.2010

Áhyggjulausir

Þar sem mér var litið út um gluggann áðan blasti þessi sjón við mér. Heiðurskettirnir lágu þarna saman á ruslatunnunni og sleiktu sólina. Það gerist nú ekki oft að þeir eigi svona náin samskipti, það er alltaf einhver pirringur , aðallega hjá Gretti í garð Grímu, hann er ekki alveg búinn að taka hana í sátt. En þarna voru þeir semsagt í sátt og samlyndi og ég mátti til að smella af þeim mynd.

Skrifað 26.8.2010 kl. 19:40 af Björn Baldursson

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.8.2010

Breytingar í vændum

Nú er komið allangt síðan að ég lét frá mér heyra síðast og tími til kominn að ráða bót á því.
Breytingar eru í vændum hjá okkur fjölskyldunni hér í Tangagötu 17. Nei, það er ekki að fjölga!!!
Flutningar eru í vændum, ekki langt þó. Við ákváðum að slá til og sækja um ábúð í Krambúðinni í Neðstakaupstað þar sem núverandi ábúendur þar, Jóhann og Sigga Steina hyggjast flytja sig um set í haust. Leggjast flutningarnir vel í okkur og eiga þeir að verða nú í september nk. 
Fyrir þá sem ekki vita er Krambúðin eitt af gömlu húsunum í Neðstakaupstað og jafnframt það elsta. Hún er byggð á tímum dönsku einokuninnar, eða árið 1757. 
Læt hér fylgja lýsingu á Krambúðinni eins og hún er á heimasíðu Byggðasafns Vestfjarða:

"Krambúðarhúsið var reist árið 1757 sem grindarhús. Verslun var í suðurendanum en vörugeymsla í norðurendanum. Notkun þess hélst að langmestu leyti óbreytt til ársins 1920, en þá var það allt þiljað á nýjan leik bæði að utan og innan og breytt í íbúðarhús.

Undirstöður voru svipaðar undir öllum húsunum í Neðstakaupstað. Þær voru mjög veigalitlar, aðeins einföld steinaröð sem raðað var á malarkambinn og aurstokkurinn lagður ofan á.

Elsta lýsing sem þekkt er af húsinu er frá árinu 1774. Þar segir m.a.: "Udi boden er afdeelt 2 de. kammre hvorudi er 8 vinduer og i boden 5 vinduer. Dessuden er i dette huus en rummelig afdeling bestaaende af 5 fag til pakbod med 1 fag vinduer og udgang til den nordre ende med 2 de. halv döre for. Uden for dörrene og vinduerne eer forsvarlige laase, jern stænger og bolte at sticke igiennem stolperne til at lucke med splitter indvendig. 
Boden og kammerene eer indvendig panelbeklædt med bræder og brædegulve. Loftet udi heele huuset er plöyet. Til opgang i loftet er en trappe. Udi hver gafl paa loftet er et vindue."  


Þegar Krambúðarhúsið var reist höfðu menn enn sem komið var ekki vetursetu á verslunarstaðnum en telja má líklegt að einhverjir af starfsmönnum verslunarinnar hafi búið í Krambúðarhúsinu um sumartímann. 
Grindarhús af þessu tagi voru reist víða á verslunarstöðum á Íslandi á 18. öld. Í Danmörku tíðkaðist að fylla húsgrind af þessu tagi af múr, þ.e. hlaða í hana múrsteinum. Slík hús voru þá sjaldnast klædd timbri, heldur var grindin og múrinn sýnilegur. Allmörg dæmi eru um grindarhús hér á landi sem hlaðið var múrsteinum í upphaflega, einkum íbúðarhús. Til að byrja með ætluðust menn stundum til þess að slík hús stæðu án frekari klæðningar eins og í Danmörku, en það gafst illa. Húsin urðu fljótt óþétt og timbrið fúnaði á skömmum tíma. Þessi hús voru nánast öll klædd timbri síðar. Engin ummerki sáust í Krambúðarhúsinu um að múrað hafi verið í grindina, enda var það einkum gert þegar um íbúðarhús var að ræða."


Það er alveg ljóst að við eigum eftir að sakna Tangagötunnar, hér hefur okkur liðið mjög vel, en svona er lífið, allt er breytilegt og maður verður að laga sig að breyttum aðstæðum.

Skrifað 23.8.2010 kl. 21:33 af Björn Baldursson

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.7.2010

Merkisdagur

Jæja, þá var komið að því að setja kallinn á flot eftir langt frí. Breiður var síðast notaður haustið 2000 til fjárfliutninga, en það haust var fjárbúskap að mestu hætt í Vigur, þannig að fjárflutningar lögðust af. Síðan hefur gamli maðurinn staðið aðgerðalaus á kambinum, þvert gegn vilja sínum, því þó hann sé orðinn rösklega 200 ára gamall er vissulega líf eftir í honum. Í fyrravetur gekkst hann undir viðamikla viðgerð og skipt var um mörg borð og bönd. Síðan hefur hann þyrst mjög að komast á flot. Á flóðinu í gærmorgun var svo stóra stundin. Ég fór inneftir á Gesti sem nú er í varðveislu Byggðasafnsins og var meiningin að leyfa þeim að hittast félögunum eftir að hafa verið aðskildir um langt skeið.
Vel gekk að setja á flot og kom á óvart hvað hann lak lítið. Síðan voru þeir tengdir saman með tógi, Gestur og Breiður, en það gerðist síðast árið 1979 um haustið, það var í síðasta skipti sem Gestur dró Breið, árið 1980 tók Stefán við hlutverki hans. Annars tala myndirnar sínu máli.






Skrifað 17.7.2010 kl. 16:01 af Björn Baldursson

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.6.2010

Á leið á ættarmót


Tók þessa mynd af systkinunum um daginn, í baksýn er skemmtiferðaskipið Costa Magica. Hef verið MJÖG latur að setja eitthvað hér inn undanfarið en ætla að reyna að taka mig á. Erum nú á leið á ættarmót norður í Öxarfjörð og komum aftur á mánudag.

Skrifað 17.6.2010 kl. 14:15 af Björn Baldursson

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Ég

Nafn:

Björn Baldursson

Farsími:

848 4878

Afmælisdagur:

2.júlí 1966

Heimilisfang:

Tangagötu 17, Ísafirði

Staðsetning:

Í 100 ára gömlu húsi á Eyrinni

Heimasími:

456 4801

Tenglar

eXTReMe Tracker