Gestabók
5.2.2011 kl. 17:51
Flottur ertu kall
Sæll -
Mér dettur í hug að spyrja hvort ekki sé séns að þú getir tekið í fóstur í Vigur - dreng andskota sem Bjarni heitir og ku vera formaður flokks vors. Ódæll er sá og ílla upp alinn. Með kveðju og Bermúdaskál.
Dabbi.
Davíð Oddsson
28.7.2010 kl. 21:00
Sæll Böddi
Ég var í sveit hjá ykkur sumarið 1989. Mér sýnist að það séu nokkrar myndir frá því sumri. Mjög gaman að skoða myndirnar þínar og eins rifja upp gott sumar :)
Kær kveðja,
Ellen
Ellen María Sveinbjörnsdóttir
18.3.2010 kl. 21:39
Takk fyrir
Ætlaði bara að þakka fyrir þessa frábæru síðu sem ég frétti af, á eftir að skoða hana miklu betur.
Magni
Magni Örvar Guðmundsson
28.2.2010 kl. 10:37
Sæll kallinn
Sæll Bjössi, var að þvælast um á netinu hérna í Noregi og rakst á Minkaveiðisöguna og skoðaði þessar líka flottu myndir hjá þér.
kveðja
Hafliði Reynisson
(skólabróðir frá Hvanneyri)
Hafliði Reynisson
26.2.2010 kl. 16:37
Flott og skemmtileg síða
Til hamingju með síðuna: skemmtileg og lífleg síða
Set þig í tenglaboxið
Kv. friggi.123.is
Jón Grunnvíkingur
24.2.2010 kl. 15:21
Skemmtileg Heimasíða
Skemmtilegt framtak hjá þér Böddi , afskaplega gaman að skoða myndir frá eyjalífinu.
Gott að þið náðuð bölvuðum minknum. Minkafælan kemur sterk inn í svona uppákomum ;)
kveðja Alexíus
Alexíus Jónasson
23.2.2010 kl. 8:49
Góð minkasaga.
Leit hér inn í fyrsta sinn vegna fréttar frá Böðvari á NAVEST. Skemtileg minkasaga hjá þér Björn, og maður komst nú bara í gírinn og gamlar mynningar úr Reykjanesinu komu í hugan, er við Skarphéðinn vorum að vinna minka á nesinu með bensíni og haglara eins og þið. Ég datt einnig inn í annað lesefni sem var neðar á síðunni og gamann að lesa það. Takk fyrir mig.
Hilmar Pálsson
29.1.2010 kl. 18:13
Frábaert framtak hjá tér Boddi.
kvedja Elsa4
Elsa
30.11.2009 kl. 1:07
Refaræktin
Sæll elsku brósi minn.
Ég var að velta fyrir mér hvort eitthvað væri til um refaræktina í Vigur. Finn það allavega ekki í molunum í fljótu bragði. Það var einhver að spyrja mig út í þetta um daginn og þá komst ég að því að ég veit allt of lítið um þetta merkilega framtak.
Bið að heilsa í bæinn
Björg Baldursdóttir
13.11.2009 kl. 11:20
Áfram með smjerið:)
Sæll elsku bróðir.
Haltu þessu endilega áfram, það er svo gaman að þessu.
En ég man ekki lykilorðið:/
Heyrumst betur seinna:)
Bestu kveðjur til ykkar allra.
Björg Baldursdóttir
3.7.2009 kl. 0:31
Sæll Böddi minn og þið öll hin
Alltaf gaman að rýna í myndirnar sem þú dundar við að setja hér inn, alveg frábært. Bestu kveðjur,
Jónas Helgi Eyjólfsson
Jónas Helgi Eyjólfsson
25.12.2008 kl. 21:44
Gleðileg jól...
...og farsælt komandi ár kæra fjölskylda!
Frá Siggu og gaurunum á Uppsölum.
Sigga H.
15.8.2008 kl. 16:33
Memory Lane...
Frábært að skoða allar gömlu myndirnar, og þær nýju líka.. Hvað höfðu Haukur og Balli verið að bralla áður en þeir sofnuðu svona hvítir á kinn?
Sólsetursmyndirnar hjá þér voru YNDISLEGAR!! Ég man mörg kvöld þar sem ég settist niður til að horfa á fallegasta sólsetur í heimi eftir kúareksturinn og þessar myndir náðu svo vel tilfinningunni og kyrrðinni...
Bið að heilsa!
Sigga Há..
6.8.2008 kl. 21:58
Æðislegar myndir!
Sæll brósi minn.
Ég sé að ég get algerlega parkerað myndavélinni þegar maður kemur í skerið okkar, finn bara myndir á vefnum þínum. Aldeilis yndislegur pakki:)Kúarektorsmyndirnar eru stórkostlegar!Bestu kveðjur í Tangagötuna
Begga systir
8.7.2008 kl. 14:06
Heil og sæl öll,
alltaf svo gaman að fylgjast með myndum af ykkur og núna úr fríinu ykkar í Kóngsins Köben. Alltaf gaman þar. Bestu kveðjur Snjóka frænka og co
Snjóka frænka
24.6.2008 kl. 22:20
Hvað er þetta með sjálfsmyndina,,
Frábærar myndir, gott að geta fylgst með ykkur kæru vinar
Ingibjörg og Axel +2
Axel og Ingibjörg
21.6.2008 kl. 13:19
Björn,böddi,böðvar,dj böddi,böddame mucho,zorro. Þetta er þessi fína síða en þú mættir nú vera duglegri að bæta inn á hana, t.d byrja að blogga þú gætir nú haft greinar um strákana í neðsta eða hafa myndir af Emil og svona.
ps. passaðu þig á þessum Gunna
Valdi olgeirs
21.5.2008 kl. 23:48
lundalús
Ég verð að segja að ég er yfir mig hrifin af nærmyndum af þessari undurfögru lús. Þetta eru náttúrulega ókrýndar fegurðardrottningar þessa lands og ég sé að þu ert sama sinnis kæri frændi af myndafjöldanum að dæma. Skál í boðinu. Þín Edda.
Edda Jóns
21.5.2008 kl. 22:59
Böddi "up to date"
Hæ, elsku Böddi minn það er gaman að sjá hvað þú ert lunkinn við að tileinka þér nýja tækni. Þetta er skemmileg síða hjá þér og mér fannst sérstaklega gaman að sjá gömlu myndirnar úr Vigur. Bestu kveðjur frá okkur öllum elsku besti Böddi minn,þín Edda frænka.
Edda Jónsdóttir
21.5.2008 kl. 22:53
8.5.2008 kl. 14:03
Munumk vér kunna at meta bók þessa er kennd er við gesti, gjörla þótt rafræn sé. "Smart hugdetta og einkar sneddí" eins og Gísli reit forðum osei sei já. Kveðja frá meginlandi því, er getið er í annálum. -Eiríkr Berolinensis
Eiríkr berolinensis
15.1.2008 kl. 0:01
"Og síðan eru liðin mörg ár"
Sæll Böddi, já og góðan daginn öll sömul og gleðilegt nýtt ár.
Það eru mörg ár liðin síðan ég var sendur í sveit í Vigur. Ætli það sé ekki rúm 40 ár. Það var ekkert sem við Bjarni Baldurs gerðum ekki eða létum okkur detta í hug í þá daga enda kraftmiklir drengir. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þá og greinilega margt breyst á þessum tíma sem liðinn er. Hvað með það gaman að sjá að það er líf í Vigurgenginu. Salli og Bjössi teknir við þó Salli hafi flutt sig til Ísafjarðar fyrir nokkrum árum. Það var frábært að rekast inn á heimasíðu ykkar í Vigur.
Til hamingju með flotta heimasíðu og skemmtilegar myndir. Reyndar var ég nestaður með myndavél þegar ég fór vestur og á þó nokkrar myndir frá þeim tíma. Mig minnir að sú myndavél og tækniundur hafi verið Kodak Instamatic 104.
Hver veit nema að ég laumi inn mynd eða myndum í framtíðinni.
Lifið heil. Bið að heilsa öllum ma. Siggu, Beggu, Röggu Bjarna, Salla, Bjössa, Viggu, Helga Braga, Bjössa, og ekki má gleyma henni Ingu Thor........
Hörður Hákonarson
Hörður Hákonarson
2.12.2007 kl. 14:43
Merkilegar myndir:)
Sæll elsku bróðir.
Gaman að sjá þessar myndir frá ´74. Það væri hægt að endurbyggja Sjóarhúsið út frá þeim:) Svo eru myndirnar frá í haust frábærar. Mörg ný sjónarhorn. Náttúrumyndirnar eru líka stórkostlegar.. hið smáa og fagra. Bestu kveðjur í bæinn.
Begga systir
Björg Baldursdóttir
22.11.2007 kl. 11:26
Innlitskvitt...
...í tilefni af lundalúsunum....
Sigga Hafsteins
19.5.2007 kl. 12:34
en umfram alt er lífið þó saltfiskur
Maggi
12.2.2007 kl. 15:44
Maður tekst á loft
Sæll Böddi og takk fyrir að benda mér á heimasíðuna. Ég tekst á loft þegar ég skoða þessar fallegu myndir úr eyjunni. Hvernig var þetta aftur? Áttum við Óskar ekki að fá að smala Fótinn, þótt engar væru rollurnar? Kveðja frá mér og mínum. Helgi Braga
Helgi Braga
30.12.2006 kl. 1:37
Glæsilegt.
Flott síða , skemmtilegar myndir. Gott framtak hjá þér Böddi.
Baldur og Helga
3.11.2006 kl. 1:40
Halló!
Gaman að skoða allar nýju myndirnar og þær gömlu sömuleiðis. :o)
Sigga Hafsteins
6.10.2005 kl. 21:25
Frábært framtak!
Þetta eru æðislegar myndir hjá þér Böddi! Vá, fékk heimþrá x1000... Ég fylgist spennt með hér eftir!!
Sigga "litla"
6.10.2005 kl. 16:00
ALVEG BRILLÍJANT!!!
Teningnum er varpað! - Þarna liggja hæfileikarnir! Þú færð normalpóst með hóli frá mér! - Kveðja frá Haffa Hafl!
Haffi